Friday, December 25, 2009

Jól

Ég elska jólin.
Ég elska þau af því að þau eru alltaf eins. Þau eru föst í hefðum og þau eru alltaf notaleg.
Ég elska þau af því að fólki þykir vænt um mig og gefur mér pakka til að sýna mér það.
Ég elska þau af því að ég fæ svo góðan mat og mamma gerir heitt súkkulaði. Súkkulaði, ekki kakó.
Ég elska þau af því að ég fæ nýjar bækur og það er bara allt annað að lesa jólabækur heldur en venjulegar bækur.
Ég elska jólin.

Ég er að eldast, jöbb. Bara rúmir 2 mánuðir í 20 ára afmælið mitt. Ég man þegar ég var yngri og heyrði að einhver væri 20... það var mjög há tala.
Og maður breytist þegar maður eldist. Viðhorf manns til margs breytist en maður heldur svo fast í það gamla.

Mér finnst margir segja fyrir hver jól að þau séu nú bara ekki í neinu jólaskapi.
Vitiði af hverju ég held það sé?
Af því að við viljum halda í barnslegu gleðina sem fylgir jólum.
Það er ekki hægt af því að við erum ekki börn lengur.

Ég hef alltaf verið jólabarn og ég verð æst þegar jólin eru að koma, svona svipað og börn geri ég ráð fyrir.
En það er samt öðruvísi. Þegar maður er barn þá er allt einhvern veginn ennþá nýtt af því að það er svo langt síðan jól voru síðast. Mér finnst ekki langt síðan síðustu jól voru.

Einu sinni var aðfangadagur mjög lengi að líða.
Í gær var ég varla vöknuð þegar ég var byrjuð að klæða mig í jólaföt - og samt vaknaði ég fyrir hádegi.

Fólk þarf að muna að það er að breytast og hætta að bera saman við fortíðina.
Fagna frekar nútíðinni og breytingunum því það er ekkert hægt að gera í þeim.
Þú verður aldrei aftur barn en þú missir af öllu því sem lífið býður upp á ef þú nýtir tímann til að vera í fýlu yfir því.

Elskaðu fortíðina
Fagnaðu nútíðinni
Hlakkaðu til framtíðarinnar

Gleðileg jól.