Wednesday, August 26, 2009

gömlu tímarnir

Eftir 8 daga er hálft ár þangað til ég verð tvítug.
Þá verð ég komin á þrítugsaldurinn. Þá má ég kaupa áfengi. Þá verð ég búin með tvo tugi ára.
Samt er ég bara rétt að byrja.
Önnur amma mín er 82. Og ég er rétt svo að verða 20. Þegar ég fæddist þá var hún 73.

Ég er búin að vera að skoða gömul blogg upp á síðkastið, rifja upp gamla tíma.
Mér finnst ótrúlega langt síðan ég var að skrifa þetta og upplifa þetta. Sumu var ég búin að gleyma, tímum sem ég hélt að ég myndi aldrei gleyma.
Margt er búið að breytast svo mikið, sambönd mín við fólkið sem skrifaði athugasemdir við bloggin mín eru svo allt öðruvísi og sum eru því miður bara voðalega lítil.
Suma þekki ég ekki einu sinni lengur.

Mér finnst samt svo gaman að rifja þetta upp, bæði það góða og slæma. Það eru bara 2-4 ár síðan ég skrifaði þetta en mér finnst svo ótrúlega langt síðan.
Sem er fyndið, af því að fólkið sem ég er að umgangast mest núna er að skríða upp úr þessum aldri. Samt finnst mér þau alls ekki voðalega ung eða óþroskuð eða neitt, nei... samt finnst mér svo langt síðan ég var á þeirra aldri. Spes.

Vá, ég verð að hætta að vera svona þegar ég blogga.

Einu sinni fór ég í bloggátak með vini mínum. Við blogguðum á hverjum degi í svona 2 mánuði held ég.
Ég held ég reyni það samt ekki aftur.

Tuesday, August 25, 2009

'i heard that you were trouble but i couldn't resist'

Gott lag
http://www.youtube.com/watch?v=IpOdAfs8jr0


I know your type (Your type)
Boy, you're dangerous
Yeah, you're that guy (That guy)
I'd be stupid to trust
But just one night couldn't be so wrong
You make me wanna lose control


Vissuð þið að ég hugsa of mikið?
Að stundum fæ ég í alvöru næstum því hausverk af því að ég hugsa svo mikið?
Ég ímynda mér heilu samræðurnar á milli mín og einhvers, og ég hef stundum átt erfitt með að muna hvort þetta gerðist eða hvort ég ímyndaði mér þetta.
Ég man líka aldrei hverjum ég er búin að segja hvað. Ég segi fólki stundum sömu söguna þrisvar.

Minnið í mér er svo fyndið.
Ég man hluti eins og afmælisdaga, bílnúmer, símanúmer, kennitölur, nöfn og tengingar á milli fólks en ég get ekki munað eftir þvottinum (sem minnti mig á að ég er með þvott í vélinni...), að gera eitthvað fyrir fólk, lyklarnir mínir, að borða og svo framvegis.
Og þó ég geti munað tölur og þannig, þá er ég svo ömurleg í stærðfræði að það er óþægilegt.

Af hverju bloggar maður?

Sunday, August 23, 2009

You get what everyone else gets

Ég er ekki alveg búin að ákveða hvernig blogg þetta á að vera.
Er þetta svona "hæj í dag gerði ég þetta bæjj"? Nei, ég held samt ekki, maður verður svo fljótt leiður á því.

Af hverju var ég annars að búa þetta blogg til?
Allt sem ég hef að segja er ég ekki viss um að ég vilji setja á netið. Bæði af því að ég vil ekkert að fólk viti það og af því að ég vil ekki hræða fólk frá mér.

Hausinn á mér er að springa úr hugsunum.