Í nútímasamfélagi þurfa alltaf allir að vita allt og segja öllum allt.
Það er eins og hlutirnir sem maður gerir séu merkingarlausir nema einhver viti af þeim, nema ALLIR viti af þeim.
Hversu margir status-ar á Facebook eru til dæmis "var að baka" eða "er þreytt" eða "er í skólanum" eða "er að fara í strætó!" eða einhverjar útgáfur af einhverju svipuðu.
Af hverju þarf ég að vita það á Facebook að fólk sem að ég veit að er í skóla, sé í skólanum?
Samt les maður þetta og stundum skrifar maður eitthvað við þetta, af því að eitthvað í manni segir að maður verði að koma þessu á framfæri.
Ekki misskilja mig, ég er algjörlega háð Facebook og ég hef oft staðið sjálfa mig að því að setja inn svona statusa. Ég hef oft tilkynnt fólki það að ég sé að borða ristað brauð. HVAÐ ER ÞAÐ?
Hverjum er ekki sama um hvort ég rista brauðið mitt eða ekki, eða að ég fái mér brauð yfirleitt?
Svo er það þessi hugsun að vera "ekki þessi týpa" heldur týpan sem setur inn "mikilvæga" statusa, djúpt þenkjandi fólk.
Ég hljóma eins og ég sé geðveikt pirruð út í þetta eða finnist þetta geðveikt asnalegt, en er blogg ekki nákvæmlega það sama?
Er það grunnþörf að fólk viti hluti um mann?
Til dæmis á bloggsíðum sem maður átti áður fyrr, þá var alltaf svona "Um mig".
Svo verður maður spenntur þegar fólk svarar, þegar maður veit að fólk hefur lesið það sem maður skrifaði, meðtekið það og fundist eitthvað um það.
Þetta er ekki eitthvað sem liggur mér sérstaklega á hjarta núna samt, ég hafði bara þessa þörf til að tjá mig og vona að einhver lesi þetta.
Mannlegt eðli gerir mig forvitna.
Thursday, October 1, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment