List.
Hvað er list?
Til hvers er list?
Hver ákveður hvað er list?
Hver "má" ákveða hvað er list?
Er ekki hugsun á bakvið einfalda list?
Þarf list að vera flókin til að vera list?
Er "einföld list" minna virði?
Er endilega minni hugsun á bakvið "einfalda list"?
Þetta eru spurningar sem mér datt í hug eftir að hafa verið að ræða um Lady Gaga við vin minn.
"Þetta er bara gella sem getur dansað vel og er tilbúin til þess að vera MJÖG fáklædd.. röddinni hennar er breytt mjög mikið og textinn er mjög klámfengur... basicly verið að nýta sér það að sexið selur"
"þú kannski veist ekkert um græjunar, en hver sem er getur séð að það er ekki mikil hugsun á bakvið þetta. ekki list að mínu mati"
Þetta er beint quote frá umræddum vini og þetta stakk mig svolítið.
Nú vil ég taka fram að ég vil ekki gera lítið úr umræddum vini, ég er bara svo rosalega mikið ósammála.
1. Dans er list. Ergo, manneskjan er listamaður.
2. Fötin. Mín persónulega skoðun er sú að föt séu list. Fatahönnun er kennd í listaháskólum. Föt eru leið til að tjá sig, koma einhverju á framfæri. Af hverju eru búningar svona mikilvægir í list (leiklist t.d.)? Af því að fötin hafa sögu að segja. Fólk tjáir sig í gegnum föt. Og fataleysi.
3. Röddinni er breytt. Já, það má vel vera, er það þá minni list? Er hún eitthvað minna að syngja? Nei, hún er nefnilega alveg jafn mikið að syngja eins og ef röddinni væri ekki breytt. Röddin kemur samt út úr henni. Hún fer svo bara inn í græjur sem breyta henni.
4. Textinn er mjög klámfengur og sexið selur.
Rétt. Er það minni list? Hvernig þá og af hverju? Af því að þetta er algengasta leiðin til að selja þá list sem á að selja? Er engin hugsun á bakvið klámfenga texta? Hefur hún eitthvað minna að segja þrátt fyrir að textarnir séu frekar basic?
Reyndar eru flestir textarnir hjá Lady Gaga um frægð, ekki kynlíf.
4. Ekki mikil hugsun á bakvið þetta. "ekki list að mínu mati"
Þá komum við að því sem ég er búin að hugsa mest um.
Í fyrsta lagi - hvernig vitum við hvaða hugsun er á bakvið þetta? Hvort hún sé mikil eða lítil? Vorum við viðstödd þegar þessi lög voru búin til?
Í öðru lagi - Minni hugsun = minni list? Ef það er ekki djúp pæling á bakvið hvert skref, af hverju er þetta þá ekki list? Geta skilaboðin ekki verið bara einföld? Þurfa skilaboðin að vera flókin og djúp, erfið og þung? Af hverju?
Í þriðja lagi - "að mínu mati". Þá komum við að nokkrum upphafsspurningunum aftur
Hver ákveður hvað er list?
Hver "má" ákveða hvað er list?
Af hverju "má" hinn og þessi ákveða það og á hvaða forsendum er það ákveðið?
Mín skoðun er sú að list er hvorki eitthvað sem einhverjir gúrúar ákveða að sé list né það sem manni persónulega finnst list.
Mér finnst ekki mjög mikil list að kúka á göngugötuna, en það er bara ekki mín skoðun sem ræður.
Fyrir mér er þetta ekki eitthvað sem er hægt að negla niður, hvað er og hvað er ekki list, hver segir það og hver ekki.
Það sem stakk mig mest í þessu samtali okkar var samt að það var hlegið að mér. Fyrir að finnast hún góð og fyrir að finnast hún listamaður.
Ég er engu minni manneskja þó ég hlusti á Lady Gaga.
Mainstream er ekki slæmur hlutur.
Nýlega varð ég ástfangin að myndbandinu Paparazzi með Lady Gaga (sjá hér)
Hugmyndin hefur komið til einhverrar manneskju. Jáá, svona vil ég hafa þetta.
Hvort sem það var Lady Gaga eða ekki, veit ég ekki.
Þetta myndband er ekki listaverk einhverrar einnar manneskju.
Það er Lady Gaga, sem hefur klárlega haft eitthvað að segja við gerð þessa myndbands.
Það er leikstjórinn, sem augljóslega hafði eitthvað að segja.
Það eru búningahönnuðir, förðunarfræðingar, fólk í hugmyndavinnu.
Lady Gaga kom að þessu myndbandi, ég á frekar erfitt með að trúa því að hún hafi bara verið sett í einhver föt, máluð einhvernveginn og sett inn í settið "Gerðu svona einn tveir og gjörðu svo vel". Nei.
Það að ég kalli hana listamann, þá er ég ekki að meina að hún eigi heiðurinn að öllu sem hefur komið fram undir hennar nafni. Enda er það sjaldnast þannig að ein manneskja gerir allt.
Hún er sögð skrifa textana sína sjálf.
Vinur minn talar um að hún geri það ekki.
Hvers vegna ekki?
Getur það bara ekki verið að mainstream poppsöngkona semji sína texta sjálf?
Af hverju ekki?
Ég veit að Wikipedia er ekki beint besta heimild í heimi en ég mæli með þessum lestri:
http://en.wikipedia.org/wiki/The_Fame#Writing_and_development
Er svo erfitt að trúa því að hér sé á ferð stelpa/kona sem hugsar fyrir sjálfa sig og hefur ákveðnar hugmyndir, ákveðna hluti sem hún vill koma á framfæri?
"The opening single "Just Dance" was written by Gaga in ten minutes with producer RedOne, after returning hungover from a party"
Nú veit ég ekki með ykkur, en mér finnst líklegt að einhverjir myndu telja þetta "ekki-list" af því að það tók stuttan tíma að skrifa þetta og þetta er varla um neitt.
En ég held það sé öðruvísi. Þetta lag, einfalt þó það sé, er gott af því að þetta eru nefnilega svo einföld skilaboð. Dansaðu bara. Hún er full, stendur varla í lappirnar. Nákvæmlega það sem er að gerast hjá mörgum, alltaf!
Þarf textinn að vera flóknari, um djúpari hluti til að vera list?
Af hverju væri þetta lag og þessi texti minni list en lag sem fjallar um... ég veit ekki.... ælur í fötum fortíðar? Nei ég segi svona.
Ég held að ég sé farin að tala í hringi en þetta er mér bara pínulítið hjartans mál.
Ekki Lady Gaga eitthvað sérstaklega, heldur þessi hugsun hvað er list og hvað ekki.
Fyrir sumarið 2009 vissi ég varla neitt um list.
Ég vil þakka Pétri fyrir að hafa ýtt mér af stað, og auðvitað öllum hinum sem unnu með mér.
Ég vil kalla sjálfa mig listamann.
Ég er í leikhóp. Ég er með hugmyndir í kollinum sem ég vil gera.
Ég vil kalla sjálfa mig listamann.
Má ég það?
Af hverju? Af hverju ekki?
Pælduíessu.
Monday, September 21, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
tinna ég elska bloggin þín.
við erum blóðheitir listamenn sem æla í fötur fortíðar samhliða því að við dönsum um með trúðanef og köllum okkur listamenn.
við erum listamenn.
bloggin þín gefa mér alltaf eitthvað til að hugsa um.
þú rokkar sokka.
pés.
Fyrir mér er þetta ekki list því þetta snýst orðið ekkert um list hjá henni, þetta snýst um peninga. Þetta snýst um að fá fólk til að kaupa plötur (með peningum) og kaupi miða á tónleika með henni (með peningum). Og hvernig er best að fá fólk til að kaupa e-ð. Nú með því að láta fólkið halda að þetta sé það sem það VILL kaupa og hlusta á. Hvernig fær maður fólk til þess að hlusta á e-ð og finnast það flott? Maður vinnur beint með eðliskvöt mannsins, þessa stærstu kvöt sem maðurinn hefur, kynkvötina. Kynkvötin er svo sterk að maðurinn einfaldlega ræður ekki við hana, hann verður að láta undan, það er í genunum okkar því við höldum mannkyninu gangandi með því að sofa saman og búa til börn.
Lögin hennar eru tengd við kynlíf með því að hafa texta eins og "I wanna take a ride on your disco stick" ...hvað er þetta annað en "mig langar að ríða þér" ?
Og hvað annað selur? Tónlist sem fólk hlustar á þegar það er fullt, því fólk verður nú að hafa e-ð til að dansa við á djamminu og það er auðvelt að selja og auglýsa í lögum fyrir fullu fólki. það er actually braut í hljóðtækniskólum sem sérhæfa sig í því að læra að setja subliminal auglýsingar í lög. Og fullt fólk vill hlusta á lög sem hægt er að dansa við á djamminu og reyna við aðra í leiðinni (leit að kynlífi btw, í flestum tilvikum).
Fyrir mér snýst list um að listamaðurinn skapar e-ð sem hann hefur ánægju af, fyrir sjálfan sig aðallega. Þetta er ástríða listamannsins. En ef listamaðurinn gerir þetta eingöngu fyrir peninga, og ef listamaðurinn er bundinn samningum sem snúast um að láta aðra græða peninga, þá er það ekki list fyrir mér. Listamaður er tilbúinn til að fórna "góðu" lífi bara til þess eins að geta skapað það sem hann vill og hefur ánægju af. En ef þetta er ekkert nema atvinna sem snýst um að fylgja eftir samningum, þá fyrir mér er þetta ekki list.
En, eins og þú segir Tinna, þá eru skoðanir misjafnar, og þetta er nú einu sinni kallað tónlist, og lady gaga flokast víst undir tónlist...
Ég heiti Ingvar Örn og ég er bitur listamaður sem finnst hann ekki fá verðskuldaða athygli og þessvegna er hann einstaklega pirraður út í fólk sem fær athygli fyrir það að gera e-ð eins og umræddur "listamaður" lady gaga gerir...
Hvernig getur þú samt vitað, Ingvar, að þetta sé eingöngu gert fyrir peninga?
Er það i alvöru svo mikið út í hött að hún hafi ánægju af því að búa til tónlist?
Listamaðurinn í mér vill ekki búa til list bara fyrir mig, eða sem bara ég hef ánægju af.
Ég sem listamaður vil koma einhverju á framfæri við annað fólk, fá annað fólk til að hugsa.
Og fær Lady Gaga þig til að hugsa mjög mikið?
Og jújú, hún getur vel haft ánægju af þessu, hún er greinilega með strípiþörf og það er mjög gaman að fá svona mikla athygli og peninga.
Og Tinna, því miður snýst ALLT um peninga í heiminum sem við lifum í dag.. Hlustaðu bara á fyrirlestra með David Icke og þér munuð skilja.
Já, reyndar hafa sum lögin hennar fengið mig til að hugsa. Og ekki bara um það sem ég "á" að hugsa við að hlusta á þau. Ætla ekkert frekar út í þá sálma hér, mínar hugsanir þ.e.a.s.
Með ánægju meinti ég annað en ánægjuna að fá peninga.
Ég meinti tilfinninguna sem t.d. ég fæ við að standa uppi á sviði (eða á gatnamótum við miðbæ Akureyrar) og vita að fólk er að horfa á mig, hugsa um mig, ég er að leika eitthvað.
Er í alvöru erfitt að halda að hún fái einhverja svipaða ánægju út úr sínum lögum?
Já, ég tók undir það með þér, hún fær alveg pottþétt ánægju af þessu, það er gaman að vita til þess að milljónir manna horfa á mann.. Og þegar maður er með svona mikla strípiþörf þá er örugglega mjög gaman að fá útrás fyrir hana...
En ég held að við munum ekki ná neinni niðurstöðu hérna Tinna, við höfum bara misjafnar skoðanir, þannig er það bara. Þú fýlar hana, ég ekki. Þér finnst þetta vera list, mér ekki - en eins og þú segir; hver getur sagt til um hvað er list og hvað ekki ?
Post a Comment