Wednesday, September 30, 2009

Fréttaljósmyndir

Ég rakst á umræðu um þetta í dag og það fékk mig til að hugsa.
(Vil um leið benda á þetta líka
og þetta )

Hvað finnst ykkur um þessar ljósmyndir og svona ljósmyndir?
Eiga svona myndbirtingar rétt á sér?

Ef við gefum okkur það að fjölskylda stráksins í efri fréttinni hafi leyft þessa myndbirtingu, hver og einn fjölskyldumeðlimur var spurður og kærasta ef hann átti svoleiðis og allir samþykktu, hvað finnst ykkur þá um þessa mynd?

Í umræðunni þar sem ég sá þetta var ein að tala um hversu ógeðslegt þetta væri, hvort sem aðstandendur hefðu leyft þetta eða ekki, "af hverju hjálpaði ljósmyndarinn ekki" "mín fyrstu viðbrögð væru ekki að taka upp myndavél!" o.sv.frv.

Auðvitað eru manns fyrstu viðbrögð við því að einhver lendi í slysi eða er sprengdur eða hvað annað ekki að vippa upp vélinni og ná sem bestri mynd.
En ljósmyndarinn er þarna í þessum tilgangi, ekki satt? Að skrá niður söguna. Sýna utanaðkomandi aðliðum hvað er VIRKILEGA í gangi.

Maður hefur alveg séð stríðsmyndir af börnum sem eru frá þessum löndum í Asíu, og ekki jafn margir eru jafn hneykslaðir yfir því.
Er líf þessarra barna eða þeirra hermanna minna virði en líf vesturlandabúa?
Og ég er alls ekki að reyna að óvirða strákinn á myndinni, alls alls ekki.
En af hverju er meira mál að birta hans mynd eða mynd af hvaða annarri stríðsmynd sem hefur ekki fengið jafn mikla athygli og þessa?

Æi ég veit ekki alveg.
Mig langaði bara að vekja athygli á þessum myndum.

Ég er algjörlega 100% hlynnt því að svona myndir séu teknar og sýndar svo lengi sem aðstandendur samþykja að myndin sé birt. En það er ekki tekið fram svo ég veit það ekki.

Við þurfum að vita af þessu af því að þetta er að gerast.
21 árs bandarískur strákur, sem á fjölskyldu, vini, kannski kærustu, áhugamál o.sv.frv. var sprengdur og dó.

Það er ekki nóg að segja það bara.

1 comment:

Unknown said...

Þetta er áhugaverð lesning hjá þér Tinna og er ég sammála þér að svona myndir séu teknar og sýndar. Þessir ljósmyndarar sem þarna eru á þessum svæðum taka myndir af því sem gerist. Mæli með að þú tékkir á þessum: http://jamesnachtwey.com/ Algjör snillingur og minn uppáhalds. Það er líka til mynd um hann sem heitir War Photographer þar sem starf hans er sýnt og fer hann í gegnum það hvernig hann vinnur það. Mikilvægt kannski fyrir alla að sjá það hvort sem þeir hafi áhuga á viðfangsefninu eða ekki. En þetta með að ljósmyndari eigi að hjálpa til. Þá hugsa ég að hermennirnir séu betur undir það búnir að sjá um það. Ljósmyndarinn verður bara vitni og eru myndirnar það sem hann getur gert til að vekja fólk til umhugsunar um ástandið.

Til að loka þessu þá eru fréttaljósmyndir uppáhaldið mitt :-)

Kveðja,
Elvar Freyr (gamall nágranni)