- Að ég kynni að mála.
Ég er svo oft með svo góðar hugmyndir að mynd.
Ég sé hlutina svo ljóslifandi fyrir mér að ég get næstum snert þá.
En ég kann ekki að mála eða teikna. - Að ég kynni að taka ljósmyndir.
En ég bara nenni ekki að reyna. - Að ég væri ekki svona sjálfsgagnrýnin.
Því ef ég væri það ekki þá gæti ég skrifað góðar sögur. - Að ég gæti skrifað leikrit.
En mér dettur aldrei neitt í hug.
Og persónulega þá finnst mér að leikrit sé eitthvað sem á að koma til manns.
Ekki eitthvað sem maður á að leita eftir. - Að ég væri með fastari skoðanir á fötum.
Því fatasmekkur minn er svo reikandi. - Að ég væri ekki svona óákveðin.
Hvar væri ég ef ég gæti bara tekið sjálfstæðar ákvarðanir og haldið mig við þær? - Að ég væri ekki svona fjandi meðvirk.
Hvar væri ég ef meðvirkni hefði ekki stjórnað lífi mínu á tímabili?
Væri ég að fara í LHÍ 2010? Búin með stúdentspróf?
Væri ég komin í skóla úti? - Að mistök hyrfu úr lífi manns.
- Að annað fólk áttaði sig á því að allir eru manneskjur.
"Leiðinlega gellan" sem þú þekkir ekki neitt en talar samt illa um... manneskja.
Með tilfinningar. Persónuleika, og skoðanir.
"Fræga stjarnan" sem gerir asnalega hluti. Rakar á sér hárið? Manneskja. Með tilfinningar, persónuleika, skoðanir. Manneskja sem er alveg jafn mikil manneskja og ég og þú.
"Þessi gella" sem gerir eitthvað ruglað á djamminu, full. Af hverju máttu gera grín að henni? Er hún ekki manneskja? Jú. Hún er ekki bara einhver, hún er manneskja sem hefur tilfinningar. Hugsaðu aðeins um það.
Jafnvel... Já, ég ætla að segja það. Jafnvel ofbeldismaðurinn/morðinginn/nauðgarinn. Þrátt fyrir allt þá eru þetta manneskjur. Hugsaðu aðeins um það. - Að staðalímyndir útlits færu ekki illa með hausinn á mér.
Jú, ég get breytt mér. En af hverju á ég að þurfa þess? - Að ég gæti stundum bara sagt við fólk
"Góða besta þegiðu. Mér er sama. Hættu þessu væli. Þetta er ekki einu sinni vandamál. Þetta er óþarfa dramatík búin til af þér um ekki neitt. Svo þegiðu" - Að þegar ég þyrði að taka sénsa þá myndi það borga sig fyrir mig
Ég vildi óska að stundum væri það ég. Og enginn enginn annar.
1 comment:
Ég vil meina að merking þessa bloggs risti dýpra en óreyndur leikmaður áttar sig á, en þar sem ég hef spilað með þér núna um hríð þá átta ég mig á þeim duldu skilaboðum sem þú felur í þessu vefbloggi þínu.
Það er mér mikil ánægja.
Post a Comment