Thursday, September 3, 2009

Ég um mig frá mér til þín.

Ég elska að tala um sjálfa mig.
Og hugsa um sjálfa mig. Ég elska að hugsa um sjálfa mig og hvernig ég er.
Það hljómar örugglega frekar spes en mér finnst ég áhugaverð manneskja.
Ekkert endilega svona "Vá, hún er svo frábær og áhugaverð" heldur bara... mér finnst gaman að pæla í manneskjum og hvað drífur fólk áfram.
Af hverju gerir þessi þetta?
Hvað ætli þessi sé að hugsa?

Og mér finnst gaman að hugsa þannig um sjálfa mig.
Mér finnst gaman að segja fólki frá sjálfri mér og skrifa um sjálfa mig.
Mér finnst ég skemmtileg. Er það ekki bara gott?

Ég elska líka að gera tilgangslausa lista um random hluti um mig.

Ég er ótrúlega forvitin um hvað öðru fólki finnst um mig og af hverju. Hvernig annað fólk upplifir mig. Og þetta er ekki eitthvað sem þú spyrð fólk að "Já, afsakaðu, hvernig er ég?".
Fólk myndi fara í kerfi, meina, hvað á maður að segja?
"Æi þú ert nú svolítið óþolandi stundum". Nei, fólk myndi ekki segja satt hvort sem er.
Ég hef alltaf sagt að fólk má tala illa um mig, það má baktala mig ef það vill.
Ég vil bara vita hvað það er að segja. Því ég er svo forvitin.
Mér er sama þó að fólki líki illa við mig. Flestu fólki allavega. Ég vil ekki að fólki líki illa við mig, haha. En fólk er mismunandi og ég á ekki samleið með öllum.

Af hverju vill maður alltaf vera að breyta sér?
Af hverju vill annað fólk breyta manni?

Mig langar að gera það sem er bannað.

No comments: