Að ég veit ekki hvar ég á að byrja og ég er hrædd um að gleyma einhverju.
Þess vegna ætla ég bara að setja það allt saman í einn hrærigraut hér og greiða úr því seinna þegar ég hef tíma.
Ég er sjálfhverf, eigingjörn, afbrýðissöm, þrjósk, frek og ósanngjörn. Og mér finnst það frábært.
Ég er loksins einhver mynd af mér sjálfri.
Ætli sveitaflugur séu hamingjusamari en borgarflugur?
Ætli einhver hafi einhverntíma gengið á fjöllin sem ég var að horfa á um helgina, úr fjarska? Hrikaleg klettabeltin... Hversu margir fermetrar á jörðinni ætlu séu algjörlega alveg ósnertir af mannkyni?
Listir... þetta er ennþá að flækjast í hausnum á mér. Eiginlega ætti ég að þakka vini mínum fyrir að hafa verið ósammála mér um daginn, þó ég ætti líka að skamma hann af því að ég hef eiginlega ekki geymslupláss fyrir allar þessar hugsanir! ;)
Hvað er list?
Ég ræddi þetta lauslega við hana Silju í gær... Er krotið sem 3 ára barnið vill setja upp á ísskáp minni list en Da Vinci? Af hverju?
Blogg er list.
Sveit og borg og einangrun og snobb.
Tónlist, tónlistarsnobb.
Ást, annað fólk. Af hverju dæmir maður annað fólk svona mikið en gerir sömu hluti sjálfur?
Ég held að þetta sé nóg af hrærigraut í bili.
Ég skrifaði líka ljóð og smásögu sem ég er að velta fyrir mér hvort ég setji inn á bloggið.
Kemur í ljós.
Monday, September 28, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment