Tuesday, September 1, 2009

Akureyrarvaka

"Hvenær byrjar þetta?"
"Halló! Máttu ekki tala?"
"Sjáiði hvað hún er creepy!"
"Hún er alltaf að stara á okkur!"
-------------

Ég labba út um dyrnar á 2. hæð Rósenborgar á Akureyri. Það er kalt úti og flest okkar eru illa klædd. Ég náði mér í ermar fyrr um kvöldið vegna þess hvað var kalt úti. Það er orðið mjög dimmt, en það er bara betra.
Börn í kyrtlum með kyndla ganga á undan okkur í tvöfaldri röð og ég geng við hliðina á línudansmærinni Alís. Við sussum á börnin til skiptis - atriðið er byrjað þó enginn sjái það.
Þegar við komum að kirkjunni lít ég á hópinn við sviðið. Hjartað í mér tekur kipp úr gleði - það er svo mikið af fólki! Ég hnippi í Alís og bendi henni á fjöldann.
Við erum farin að mæta fólki við kirkjuna og í tröppunum. Þau horfa forviða á okkur.
Við komum okkur fyrir á gatnamótunum þar sem atriðið á að byrja og strax fer að myndast hópur af fólki í kringum okkur, aðallega krakkar samt. Bílaumferðin fyrir aftan snýr við því við tökum allt plássið á gatnamótunum.
Við bíðum í gegnum nokkur lög og hópurinn í kringum okkur stækkar. Bíllinn okkar er kominn og bílstjórinn, trúðurinn Pétur, gengur til liðs við okkur á gatnamótunum.
Krakkarnir eru farnir að verða óþolinmóðir en eru enn mjög spenntir. Ég hef verið að líta á þau, stara á þau og brosa. Þeim finnst það óþægilegt en frábært á sama tíma.
Ég lít upp og sé Sirkusstjórann sjálfan klifra niður af sviðinu og nú veit ég að þetta er að fara að gerast. Kyndlabörnin sem voru við sviðið fara að færast nær. Sirkusstjórinn er nú kominn alveg að hópnum og segir þeim að færa sig svo börnin komist fyrir framan línuna.
Hann fer sjálfur að bílnum og tónlistin byrjar.
Hjartað í mér stoppar. Þetta er í alvöru að gerast, núna, hérna, þetta er að gerast!
Við byrjum að dansa og ég finn hvað fólkinu finnst þetta spennandi.
Ég ruglast smá, en það er allt í lagi. Það átti að vera svoleiðis.
Núka stígur fram og gerir sinn hlut. "NÚKA" og við fylgjum honum í hreyfingum - niður, upp, niður, upp.
Hann fer aftur inn í hópinn og ballettdansararnir Tinna og Mjöll stíga fram. Atriðið er magnað. Tinna hendir Mjöll í jörðina og rífur hana upp á hárinu og þá er komið að Pétri.
"STOOOOPPP" öskrar sirkusstjórinn. Fólkið klappar. Sirkusstjórinn bendir fólkinu á að koma með og Pétur hoppar inn í bílinn. Næsta lag byrjar og skrúðgangan fer af stað niður eftir göngugötu Akureyrarbæjar.
Ég labba hraðar en ég ætla, bíllinn er að hverfa frá mér. Ég stoppa og sný mér við, í áttina að fólkinu sem streymir niður göngugötuna. Fólki bregður þegar það sér mig, "Ojh!" heyri ég stundum. Sumir brosa og eiga erfitt með að líta undan þegar ég stari beint í augun á þeim.
Ég fylgi stundum fólki, labba við hliðina á því eins og ég þekki þau, sé með þeim. Horfi fallega á þau og hálfbrosi. Það er gaman að sjá að fólki líður pínulítið óþægilega. Þannig á það að vera. Þá er atriðið að heppnast.
Bíllinn er langt á undan mér og þegar ég kem að Ráðhústorgi hefur mikill hópur fólks safnast fyrir. Ég heyri Sirkusstjórann tala, ég heyri ekki mikið. "Orðin sem ég nota skipta ekki máli", segir hann.
Ég sest á grasið og lít til hliðar. Þar er kona með myndbandsvél. Hún blikkar mig.
Ég stend aftur upp og færi mig. Labba með fram fólkinu. Ég sé Alís, hún er að ganga á línum. Henni virðist vera óglatt, hún riðar, dettur næstum.
Ég heyri Pétur segja við Sirkusstjórann að koma niður af pallinum. Tónlistin byrjar.
Tinna og Mjöll stíga fram.
Þær eru samstíga í dansi. Lagið, svo innilega hrollvekjandi. Svo heyri ég þegar hitt lagið kemur inn í og ég lít yfir á Parkour strákana. Þeir eru að gera sig tilbúna. Hinir strákarnir eru að gera sig tilbúna fyrir eldblásturinn.
Parkour strákur kemur hlaupandi og hoppar yfir Tinnu og Mjöll þar sem þær haldast í hendur. Eldblásturinn byrjar. Fólk er mjög hrifið af þessu.
Ég sé slökkviliðsmann færa fólk úr vegi og búa til smá bil á milli sín. Í smá stund held ég að það sé til þess að þeir hafi greiðan aðgang vegna þess að það er eldur í skálum á torginu en svo sé ég Parkour strák taka stökk niður á grasið.
Lagið er svo þungt og spennandi. Eldur er alltaf spennandi. Ég sé einn Parkour strákinn stökkva yfir eina eldskálina. Ég veit að það er kalt úti en ég finn ekkert fyrir því.
Lagið klárast og Sirkusstjórinn og Pétur skipa fólkinu að færa sig svo að kyndlabörnin komist að brjóstarhaldarakonunni. Við hin færum okkur að bílnum. Kastljósin sem voru á Ráðhústorginu deyja út.

Atriðið er búið.

Spennufall.

No comments: