Eftir 8 daga er hálft ár þangað til ég verð tvítug.
Þá verð ég komin á þrítugsaldurinn. Þá má ég kaupa áfengi. Þá verð ég búin með tvo tugi ára.
Samt er ég bara rétt að byrja.
Önnur amma mín er 82. Og ég er rétt svo að verða 20. Þegar ég fæddist þá var hún 73.
Ég er búin að vera að skoða gömul blogg upp á síðkastið, rifja upp gamla tíma.
Mér finnst ótrúlega langt síðan ég var að skrifa þetta og upplifa þetta. Sumu var ég búin að gleyma, tímum sem ég hélt að ég myndi aldrei gleyma.
Margt er búið að breytast svo mikið, sambönd mín við fólkið sem skrifaði athugasemdir við bloggin mín eru svo allt öðruvísi og sum eru því miður bara voðalega lítil.
Suma þekki ég ekki einu sinni lengur.
Mér finnst samt svo gaman að rifja þetta upp, bæði það góða og slæma. Það eru bara 2-4 ár síðan ég skrifaði þetta en mér finnst svo ótrúlega langt síðan.
Sem er fyndið, af því að fólkið sem ég er að umgangast mest núna er að skríða upp úr þessum aldri. Samt finnst mér þau alls ekki voðalega ung eða óþroskuð eða neitt, nei... samt finnst mér svo langt síðan ég var á þeirra aldri. Spes.
Vá, ég verð að hætta að vera svona þegar ég blogga.
Einu sinni fór ég í bloggátak með vini mínum. Við blogguðum á hverjum degi í svona 2 mánuði held ég.
Ég held ég reyni það samt ekki aftur.
Wednesday, August 26, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
hahaha bloggátak :D
ég met það mikils að vera talin þroskaðri en aðrir :)
aldur er bara tala á blaði.
Hey, ég ætlaði að skoða folk.is en fæ bara ellos eitthvað prjóna dót :O
Post a Comment